Hundur gólar jólalag - Myndband

Jólatónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar hafa farið fram víðs vegar um héraðið nú í desember.  Fyrstu leikar hófust fimmtudaginn 8. desember í Félagsheimilinu Höfðaborg Hofsósi, á Hólum12. desember, í Miðgarði 13. desember og þeir síðustu í matsal í Árskóla í gær.

Tónlistarskólinn hefur aðsetur á Sauðárkróki en sinnir tónlistarkennslu í öllum Skagafirði og eru kennslustaðir fimm talsins. Samkvæmt heimasíðu skólans fara kennarar á milli kennslustaða eftir því sem þörf er á hverju sinni en skólinn hefur útibú á Hofsósi og Varmahlíð en fær aðstöðu í Grunnskólunum á Hólum og Sólgörðum.

Skólastjóranum Sveini er margt til lista lagt og í myndbandinu hér að neðan leikur hann undir með einum nemenda sínum sem gólar lítið jólalag.

 

Jóla dúettinn ... frábæri hahaha

Posted by Sólveig Austfjörð Bragadóttir on 2. desember 2016

Fleiri fréttir