Hús rýmd á Sauðárkróki
Þrjú hús í Kristjánsklauf, Kambastígur 4, 6 og 8 á Sauðárkróki hafa verið rýmd vegna snjóflóðahættu. Miklar hengjur hafa myndast á Nafarbrúnum fyrir ofan húsin og hluti þeirra fallinn að sögn Vernharðs Guðnasonar hjá Almannavörnum Skagafjarðar.
Vernharð segir að í samráði við sérfræðinga Veðurstofunnar verði næstu skref ákveðin en ljóst er að íbúar mega ekki fara heim fyrr en gengið hefur verið úr skugga um að öllu sé óhætt.
Ekki er algengt að snjóflóð falli á Króknum og sagðist Vernharð ekki vita til þess að hús hafi verið rýmd áður en í eitt skipti hefði það verið íhugað.
Mikill snjór er nú á Sauðárkróki og sagði Haraldur Ingólfsson formaður Bjsv. Skagfirðingasveitar að deginum hafi verið eytt í að draga bíla úr sköflum. Aðfararnótt laugardags voru tvær ferðir farnar á Þverárfjallið til að aðstoða ökumenn sem lent höfðu í vandræðum en einnig voru tvær ferðir farnar á Laxárdalsheiðina og Laxárdalinn í sömu erindagjörðum. Þá aðstoðaði Skagfirðingasveitin við að koma lítilli rútu upp á veg í Norðurárdalnum en sú hafði farið útaf en engin meiðsli á þeim tveimur farþegum sem þar voru innanborðs né bílstjóranum.
Meðfylgjandi myndir tók Sveinn Brynjar Pálmason.