Hvað gamall nemur ungur temur
Það má segla að gamla máltækið „Hvað ungur nemur gamall temur“ hafi haft endaskipti þegar þriðji bekkur IHÓ í Árskóla á Sauðárkróki fékk góða gesti í heimsókn á dögunum. Bekkurinn hefur sinnt ýmsum skemmtilegum verkefnum í vetur og hafa krakkarnir m.a. verið að vinna með iPad.
Hópur eldri borgara á Sauðárkróki vildi kynna sér notkun á iPad og sýndu krakkarnir þeim hluti eins og að kveikja og slökkva, taka mynd, lesa dagblöðin og hlusta á fréttirnar svo eitthvað sé nefnt.
Að sögn Ingva Hrannars Ómarssonar kennara varð þetta ánægjuleg heimsókn og mjög skemmtilegt verkefni eins og svo margt annað sem bekkurinn er að gera. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá heimsókninni sem Ingvi Hrannar tók.
.