Hvað getur fólk gert í jarðskjálftum?
Næstkomandi þriðjudag 13. nóvember verður haldinn fræðslu og kynningarfundur á Sauðárkróki á vegum Almannavarnanefndar klukkan 17:30 í Bóknámshúsi Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra. Fjallað verður um jarðskjálfta og viðbrögð við þeirri vá sem þeim getur fylgt.
Dagskrá fundarins:
- Kynning á fundarefni og fyrirkomulagi
- Jarðskjálftar á Norðurlandi, hvað veldur?
- Áætlanir, viðbragð, kynningarefni
- Hvað getur fólk gert?
- Hvernig bregstu við tjóni
- Næstu skref
- Sérfræðingar frá Veðurstofu, Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og fleirum flytja erindi og svara spurningum úr sal.
Íbúar Skagafjarðar eru hvattir til að mæta og fræðast um jarðskjálfta og viðbrögð við þeim.