Hvalreki á Sauðárkróki – fýlan ólýsanleg
Dauður hvalur marar nú í fjörunni neðan við slökkvistöðina á Sauðárkróki, forvitnum augum til skemmtunar en fínum nefjum til angurs. Hvalurinn er greinilega löngu dauður því óþefurinn af honum ætlar alla að drepa er búa í nágrenninu og sjá má viðbjóðssvip forvitinna Króksara sem berja hræið augum. Sjómaður sem var á staðnum er blaðamaður leit á skepnuna, segir að þarna sé um búrhval að ræða, líklega um tólf metra langan en hann mun vera stærstur allra tannhvala. Algengt er að þeir verði 8-20 m á lengd og 20-50 tonn að þyngd.
Kona sem býr í næsta nágrenni við staðinn segist hafa kúgast þegar hún opnaði austurgluggann í svefnherberginu sínu í morgun og hélt að verið væri að gera at í þeim hjónum með einhverju ógeði við gluggann þeirra en þá stóð vindur beint af hvalnum, sem farinn er að rotna allískyggilega, og beint á húsið þeirra. Ekki líta allir á hvalrekann sem eintóma óhamingju því hann er hrein veisla fyrir marga fugla og aðrar skepnur. Fyrir utan hina hefðbundnu sjófugla og krummann sívinsæla hafa sést á sveimi fálkar tveir sem setjast á hræið og ná sér í bita en fljúga svo burt. Halda menn að þeir séu jafnvel komnir með unga í hreiður einhversstaðar á Nestánni en þeir verpa snemma á vorin eins og hrafninn.
Eftir því sem næst verður komist verður hvalnum ekki komið burt fyrr en á morgun þar sem frídagur er í dag en vegna hagræðingaraðgerða sveitarfélagsins er ekki leyfilegt að vinna yfirvinnu á þess vegum.
Konan sem Feykir ræddi við var ekki ánægð með þann sparnað og sagði þau hjón ætla að halda til hjá syni þeirra og tengdadóttur þar til þessi ófögnuður væri farinn úr fjörunni.