Hvetja Skagfirðinga til að mæta í þjóðbúningum
Hópur kvenna á Sauðárkróki ætlar að klæðast þjóðbúningum sínum við setningu Sæluviku sem fer fram í Safnahúsinu á morgun, sunnudaginn 28. apríl kl. 14. Þær vilja hvetja aðra, karla jafnt sem konur, til að mæta í sínum hátíðar- eða þjóðbúningum við tilefnið.
Umræddar konur eru saman í prjónaklúbb sem hittist í Húsi frítímans einu sinni í viku en að sögn Ástu Ólafar Jónsdóttur kviknaði hugmyndin þar eitt miðvikudagskvöldið.
„Við fórum að ræða um að það séu alltof fá tilefni til þess að taka upp þjóðbúninginn okkar en það hefur verið kannski tvisvar ár ári. Þá létum við okkur detta í hug að mæta í honum við setningu Sæluviku,“ útskýrði Ásta. „Við viljum endilega hvetja aðra til að mæta í sínum búningum en ég er búin að komast að því að það eru margar konur hér á Króknum sem eiga búninga,“ bætti hún við.
„Ég gerðist meira að segja svo djörf að koma með þá yfirlýsingu að ég ætlaði að mæta á kjörstað í upphlutnum mínum, ætli ég verði ekki að standa við það,“ sagði Ásta. Þess má einnig geta að Sigríður Sigurðardóttir safnstjóri Byggðasafns Skagfirðingar hvetur konur til að fjölmenna í Glaumbæ á Kvennadaginn 19. júní, þar er kaffi í boði fyrir þær sem mæta í þjóðbúningum.
Eftir setningarathöfnina ætla konurnar í prjónaklúbbnum að fjölmenna í Dvalarheimilið á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki og heimsækja fólkið sem þar dvelur.