Hvetur fólk til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu
Almannavarnarnefnd Skagafjarðar vill hvetja fólk til að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þá vill nefndin minna á neyðarnúmerið 112 þurfi einhver á aðstoð að halda. Almannavarnanefndin kom saman í gærkvöldi en á fundinum var fjallað um það hættustig sem ríkislögreglustjóri hefur líst yfir allt frá Árnessýslu, um vesturland allt að Húsavík.
Í fréttatilkynningu frá Almannavarnarnefndinni segir að fylgst verður náið með þróun mála. Allir viðbragðsaðilar í Skagafirði eru reiðubúnir til að takast á við þau verkefni sem upp kunna að koma vegna óveðursins.
Samfara djúpri lægð er stórstraumsflóð og því má reikna með miklu brimi. Hægt er að fylgjast með færð á vegum á heimasíðu vegagerðarinnar vegagerdin.is og með veðri á heimasíðu veðurstofunnar vedur.is.