Íbúagátt á heimasíðu Húnaþings vestra
Á heimasíðu Húnaþings vestra hefur nú verið opnuð rafræn íbúagátt. Þar er hægt að nálgast útgefna reikninga frá sveitarfélaginu. Einnig er hægt að skrá sig inn á svæði hitaveitunnar þar sem nálgast má allar helstu upplýsingar eins og notkun, álestra, hreyfingayfirlit, reikninga og viðskiptastöðu. Notendur skrá sig inn á íbúagáttina með íslykli.
Í frétt á heimasíðunni kemur fram að með þessari þjónustu mun Húnaþing vestra hætta útprentun hitaveitureikninga. Þeir einstaklingar sem vilja áfram fá senda útprentaða reikninga geta óskað eftir því með að senda póst á netfangið helena@hunathing.is.
„Með þessu er sveitarfélagið að auka þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og stuðla að umhverfisvænum rekstri,“ segir í fréttinni.