Íbúum Skagafjarðar bent á að stilla rafmagnsnotkun í hóf á laugardaginn
Í tilkynningu frá RARIK er íbúum Skagafjarðar bent á að stilla rafmagnsnotkun sinni í hóf laugardaginn 29. maí nk. því þá verður svæðið keyrt á varaafli.
"Vegna tengingar á nýjum jarðstreng til Sauðárkróks verður Skagafjörður keyrður á varaafli laugardaginn 29. maí frá kl. 08:30 til 18:00. Rafmagnsnotendur eru beðnir um að stilla rafmagnsnotkun í hóf og forðast óþarfa aflbreytingar. Sauðárkrókur og austanverður Skagi verða rekin á varavélum á Sauðárkróki.
Mögulega verður rafmagnsleysi í stuttan tíma undir lok tímans og ekki er hægt að útiloka langvarandi rafmagnsleysi. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690."
/Fréttatilkynning