Iðnkynning grunnskólanema í FNV

Grunnskólanemendur frá Skagaströnd, Blönduósi, Húnavöllum og Varmahlíð heimsóttu Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra síðustu tvær helgar og kynntu sér iðnnám skólans. Nemendurnir tóku þátt í námskeiði sem náði til náms í málmiðnum, tréiðnum og rafiðnum. 

Að auki fengu nemendurnir að vinna verkefni í Fab Lab smiðju skólans. Á heimasíðu FNV segir að mikil ánægja hafi verið hjá nemendunum með námskeiðið og sýndu þeir verkefnunum mikinn áhuga.

Fleiri fréttir