Ísland – Noregur klukkan 3
Norðurlandamót lögreglumanna í knattspyrnu stendur nú sem hæst en um 180 lögreglumenn af báðum kynjum etja kappi á knattspyrnuvöllum á Sauðárkróki og Hofsósi. Nú klukkan 15 keppa karlalið Íslands og Noregs á aðalvellinum á Króknum.
Íslandi hefur ekki gengið sem skyldi því í opnunarleik mótsins tapaði liðið á móti Finnlandi 2-0 og þrátt fyrir góðan leik á móti Svíum náðist ekki að fylgja eftir góðum sóknum og tapaðist sá leikur 2-1.
Nú er að ekki um neitt annað að ræða en að skella sér á völlinn og hvetja íslenska liðið til sigurs.