Íslandsmót yngri flokka í körfubolta af stað á ný

Þriðja umferð Íslandsmóts yngri flokka í hefst helgina og þrjú lið frá Tindastóli munu taka þátt í fjölliðamótum. Eitt mótið fer fram hér á heimavelli auk drengjaflokks sem á heimaleik á laugardag.

11. flokkur drengja heldur austur á Egilsstaði til keppni í B-riðli en andstæðingar þeirra eru lið FSu/Hrunamanna, Vals, Hauka auk heimamanna í Hetti.

8. flokkur drengja spila í í E-riðli sem fer fram Flúðum og eiga því langt ferðalag fyrir höndum. Þar verða andstæðingarnir lið heimamanna í Hrunamönnum, ÍR og Ármenningar. Um dagsmót er að ræða.

8. flokkur stúlkna spila í A-riðli og fær nú loksins heimamót, en þær munu spila gegn Hrunamönnum, Keflavík A, Keflavík B og Njarðvíkingum.

Hér má sjá nánari dagskrá fjölliðamótanna.

Drengjaflokkur tekur á móti Skallagrím

Á laugardaginn tekur Drengjaflokkur á móti Skallagrími í Íslandsmótinu á laugardaginn kl. 16.30. Strákarnir töpuðu sínum fyrsta leik gegn Stjörnunni í Íslandsmótinu á dögunum og munu því reyna  komast á sigurbraut á nýjan leik.

Vegna fjölliðamótsins um helgina færast laugardagsæfingarnar niður í litla sal, samkvæmt sérstakri áætlun sem sjá má hér. Míkróboltinn færist niður í barnaskólasalinn á sunnudagsmorguninn en körfuboltaskólinn fellur niður.

 

Fleiri fréttir