Íslendingar stóðu sig vel í Júróvísioninu
Frú Frábær er enn rosalega ánægð eftir Júróvísjónkeppnina því mörg skemmtileg og nokkuð fjölbreytt atriði voru flutt með reyndar misgóðumárangri. Svíþjóð var af mörgum spáð sigri og gekk sú spá eftir en hver spáði ömmunum öðru sætinu annar en Frú Frábær? Framlag Íslands var flott og vel flutt og horfðu margir Evrópubúar á Jónsa og grétu... og Grétu. Þrátt fyrir ekkert rosalega mörg stig var þetta alveg frábært hjá þeim. Alveg frábært.