Íslenska gæðingakeppnin – þróunin eftir landsmótið 1950 :: Kristinn Hugason skrifar

Björn Gunnlaugsson (1884-1965) og Skuggablakkur frá Kolkuósi (1949-1965) á landsmótinu á Skógarhólum 1958. Björn er þá 74 ára og gæðingurinn 9 vetra. Mynd úr bókinni Á Fáki fráum.
Björn Gunnlaugsson (1884-1965) og Skuggablakkur frá Kolkuósi (1949-1965) á landsmótinu á Skógarhólum 1958. Björn er þá 74 ára og gæðingurinn 9 vetra. Mynd úr bókinni Á Fáki fráum.

Kæru lesendur, eftir smásveig sem tekin var og fjallað um reiðbúnað, s.s um reiðskó og stígvél, gæruúlpur, svipur og píska, skal haldið áfram þar sem frá var horfið í 1. tbl. Feykis nú í ár, Íslenska gæðingakeppnin – Landsmótið 1950, og fjallað áfram um sögu íslensku gæðingakeppninnar en sú samantekt hófst með greininni Íslenska gæðingakeppnin í 46. tbl. Feykis 2019.

Eins og fram kom í frásögn minni af gæðingakeppni landsmótsins 1950 var byggt mjög á gömlu aðferðinni við að dæma kynbótahross; dómnefnd starfaði og umsögn gefin, jafnframt sem traust var sett á mjög reynslumikla menn, sannkallað öldungaráð, sem áttu að taka stöðuna í samanburði við langa fortíð, frá því er þeir voru ungir. Kynbótamegin var allt annað í gangi; þar fór Gunnar Bjarnason fyrir, ungur maður þá og byltingarkenndur framfaramaður en hugmynd hans að fara að dæma kynbótahrossin á tölulegum kvarða var frábær nýjung sem síðar opnaði á enn meiri nýjungar í ræktunarstarfi íslenska hestsins.

Lokaniðurstaða gæðingadómnefndarinnar 1950 hvað stöðuna þá varðaði var þessi: „Við teljum enga hesta í þessum hestahópi fullþjálfaða snillinga á gamla vísu, þótt hér séu margir snjallir góðhestar. En máske segið þið, að sá dómur byggist á hillingum æskuminninga gamalla manna.“

Þróun mála næstu árin
Á næstu tveimur landsmótum 1954 og 1958 var mjög svipaður háttur hafður á hvað dagskrá mótanna og keppnisgreinar varðar og á mótinu 1950. Kynbótasýningar og kappreiðar voru í forgrunni jafnframt sem keppni góðhesta var framhaldið. Í mótskrá landsmótsins á Þveráreyrum í Eyjafirði sem fram fór 7.-11. júlí 1954 segir svo um tilhögun góðhestakeppninnar:

„Hverju félagi innan Landssambands hestamannafélaga er gefinn kostur á að senda 3 hesta til þessarar keppni. „Fákur“ í Reykjavík hefir þó leyfi til að senda 5 hesta, vegna þess hve fjölmennt það félag er.

Stjórnir félaganna eða þar til kjörnar nefndir hafa valið þá gæðinga, sem hér mæta, úr hópi reiðhesta viðkomandi félagsmanna. Það má því álykta, að þessir hestar séu sýnishorn þess bezta, sem nú fyrirfinnst meðal reiðhesta okkar.

Félög þau, sem senda hesta til þessarar keppni eru: Sindri í Mýrdal og Austur-Eyjafjöllum; Smári, Árnessýslu; Sleipnir, Árnessýslu; Faxi, Borgarnesi; Léttfeti, Sauðárkróki; Stígandi, Skagafirði og Léttir, Akureyri.

Í keppni þessari taka einungis þátt vanaðir hestar. Þeir verða dæmdir eftir sömu stigatöflu og kynbótahrossin. Eigendur fimm þeirra hesta, er hljóta beztan dóm, fá áletraðan bikar sem verðlaun.“

Hestamannafélögin í landinu tilkynntu sem sagt sjálf um það hvort um þátttöku yrði að ræða úr þeirra röðum, höfðu hvert um sig ákveðinn kvóta þátttökuhrossa inn á mótin og voru ábyrg fyrir vali þeirra. Nýjungin á mótinu 1954 var sú og ekki svo lítil, að geldingarnir sem kepptu voru dæmdir samkvæmt dómskala kynbótahrossa.

Góðhestarnir á mótinu ´54 voru dæmdir af dómnefnd eins og fyrr, í henni sátu: Björn Gunnlaugsson í Reykjavík, formaður Fáks 1938 til 1949 og sat í stjórn Fáks alls í aldarfjórðung, Björn var ástríðumaður um gæðingaeign en hans síðasti var Skuggablakkur frá Kolkuósi sem var meðal fremstu góðhesta á landsmótinu 1958; Björn Jónsson á Akureyri, einn hinna kunnu Mýrarlónsbræðra, frábær reiðmaður og reyndur dómari og síðast en ekki síst Steinþór Gestsson á Hæli bóndi og alþingismaður, formaður LH 1951 til 1963, auk fleiri stjórnarstarfa fyrir samtökin.

Í bókinni Á fáki fráum. Brot úr sögu hestamannafélagsins Fáks. Gefin út á 70 ára afmæli félagsins 1992, í ritstjórn Valdimars H. Jóhannessonar er hrífandi frásögn af störfum og hestamennsku Björns Gunnlaugssonar, undir yfirskriftinni: „Kyndill í myrkri fálætis“, er það mikil og merk baráttusaga um það hvernig hestamennskan náði fótfestu innan borgarinnar sem var þá óðum að þenjast út. Björn brann fyrir hestum og hestamennsku allt fram í andlátið en svo segir um svanasöng Björns í frásögukaflanum: „Björn lést 12. júní 1965 á 81. aldursárinu.

Hann hafði verið heilsuhraustur alla ævina, fullfrískur á ferðalögum og við tamningar fram á síðustu ár en kenndi sér skyndilega sjúkleika þremur vikum fyrir andlátið. Veikindin gátu ekki hindrað hann í að koma á hvítasunnukappreiðar félagsins 7. júní aðeins 5 dögum fyrir andlátið, þar sem keppt var um bikarinn góða sem hann hafði gefið [keppnisbikar sem Björn gaf félaginu á fundi með stjórn Fáks sem fram fór á heimili hans á Laugarvegi 48 þann 18. febrúar það ár, hann hvatti stjórnina þá mjög til að lyfta hestaíþróttunum betur upp og gaf bikarinn í þeim tilgangi]. Síðasta gæðing sinn, Skuggablakk, lét Björn fella sama dag og hann fór á sjúkrahúsið þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt.“

Sigurvegari góðhestakeppninnar 1954 var Stjarni frá Oddsstöðum í Borgarfirði, 9 vetra, knapi Bogi Eggertsson í Reykjavík. Hestamaður mikill og félagsmálamaður, landsdómari kynbótahrossa með meiru. Hann tók saman kennsluritið Á fáki. Kennslubók í hestamennsku ásamt með Gunnari Bjarnasyni og LH gaf út 1953. Bogi var formaður Fáks 1949 til 1953.

Næsta landsmót fór fram við Skógarhóla í Þingvallasveit dagana 17. til 20. júlí 1958. Fyrirkomulag keppninnar var mjög svipað og á mótinu á undan, nema hvað nú var þátttökuhestum frá Fáki fjölgað upp í 7 vegna þess hve miklu fjölmennara það félag var miðað við hin sem máttu senda 3 hesta hvert eins og fyrr. Hestum í verðlaunasætum var og fjölgað í sjö. Þá höfðu bæst við þátttökuna hestamannafélögin Geysir í Rangárvallasýslu, Hörður í Kjósarsýslu, Neisti [svo skv. mótsskránni, nú Dreyri] á Akranesi og Sörli í Hafnarfirði.

Góðhestadómnefndina skipuðu: Matthías Matthísason í Reykjavík, frábær reið- og tamningamaður, hann starfaði hjá Sjóvá og gekk iðulega undir kenninafninu Matthías í „Sjóvá“ (sjá Ættbók og sögu I Gunnars Bjarnasonar, útg. POB Akureyri 1968, bls. 100). Matthías bjargaði einmitt gæðingseðli Skugga-Blakks [ritháttur GB á nafninu] Björns Gunnlaugssonar sem keppti á mótinu með sóma en hann keyptu nemendur Gunnars á Hvanneyri ótaminn í námsferð norður í Kolkuós og víðar; hann reyndist mjög skeiðlaginn en geðljúfur og viljugur en komst svo í hendur Matthíasar umrædds „og þar með var trygging fengin fyrir því, að gangkostir hans yrðu notaðir til hins ýtrasta“ eins og Gunnar orðar þar á áður tilvitnuðum stað.

Aðrir dómnefndarmenn voru Steingrímur Óskarsson, kenndur í mótsskránni við Akureyri, en var kunnur skagfirskur stórhestamaður, en hann átti lengi heima á Sökku í Svarfaðardal í skjóli dóttur sinnar. Þá sat í dómnefndinni sem fyrr Steinþór Gestsson á Hæli.

Sigurvegari góðhestanna ´58 var hinn rómaði Árna-Blesi, Blesi frá Hofsstaðaseli, Árna Guðmundssonar, knapi Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki. Þjóðskáldið Hannes Pétursson kallaði Árna-Blesa í kvæði hvorki meira né minna en „Orminn-Langa í fylkingu hrossa“.

Kristinn Hugason.

Áður birst í 13. tbl. Feykis 2020

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir