Ísmót Riddara Norðursins
Riddarar Norðursins ætla að halda Opið Ísmót á Tjarnatjörninni sunnan við Reiðhöllina Svaðastaði. Mótið verður haldið næstkomandi laugardag, þann 9. febrúar kl. 14:00.
Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Léttfeta verður keppt í A-flokki, B-flokki, Tölti, Tölti yngri flokki og tölti áhugamannaflokki.
Skráning fer fram í Tjarnabæ þann sama dag milli kl 12 og 13. Skráningagjöld 1000 kr. á skráningu.