Íþróttatengd ferðaþjónusta í Skagafirði :: Kristján Bjarni Halldórsson skrifar

Frá Hlíðarenda. Mynd: Kristján Bjarni Halldórsson.
Frá Hlíðarenda. Mynd: Kristján Bjarni Halldórsson.

Ferðamennska hefur farið vaxandi á Íslandi undanfarin ár en nú hefur veira sett strik í reikninginn. Líklegt má telja að erlendir ferðamenn verði fátíðir gestir í sumar. Aftur á móti binda aðilar í ferðaþjónustu vonir við að Íslendingar verði duglegir að ferðast innanlands. Fegurð Skagafjarðar heillar hvern þann sem sækir fjörðinn heim. 

Í Skagafirði stendur ferðamönnum margt til boða. Hér er náttúrufegurð og fjölbreytt líf manna og dýra sem njóta má jafnt sumar sem vetur. Skagfirðingar eru þekktir fyrir fjölbreytt menningarlíf og sagan drýpur af hverju strái. Veitingastaðir eru góðir og gistimöguleikar margir og spennandi. 

Tækifæri
Mikilvægt er að ferðamönnum standi fjölbreytt afþreying til boða. Íþróttatengd ferðamennska fer vaxandi og þar eru tækifæri sem nýta má betur. Í Skagafirði er mikil áhersla á íþróttir, enda erum við heilsueflandi samfélag þar sem lögð er áhersla á hreyfingu fólks á öllum aldri.  Golf er næst vinsælust íþrótta á Íslandi samkvæmt iðkendatölum frá ÍSÍ, knattspyrnan trónir á toppnum. Í aldurshópnum 30+ hefur golfið þó vinninginn. Kylfingar taka með sér golfsettin þegar ferðast er um landið. Sumir skipuleggja ferðalagið út frá golfvöllum. Í því er fólgið tækifæri fyrir golfklúbbinn, sveitarfélagið og aðra aðila í ferðaþjónustu í Skagafirði. Aðstæður núna eru sérstakar og líklegt að kylfingar verði óvenju duglegir að ferðast innanlands.

Paradís á Nöfunum
Hlíðarendavöllur er Paradís á Nöfunum.  Útsýni er inn og út fjörðinn með fagra fjallasýn.  Dýrahljóð setja sinn ljóma á völlinn. Fuglarnir syngja, en kannski ekki alltaf þeir fuglar sem kylfingar vilja að syngi. Ég hef nú ekki hitt hanann sem galar reglulega þegar ég er að spila, en mikið óskaplega þykir mér vænt um hann.

Völlurinn er þekktur fyrir góða umhirðu og skemmtilegar brautir.  Kylfingar bera honum vel söguna. Völlurinn er líka vinsæll meðal útivistarfólks, í gönguferðum jafnt sumar sem vetur.  Golfskálinn er félagsaðstaða GSS og afdrep fyrir börn og unglinga milli æfinga. Í skálanum koma kylfingar saman þegar mót eru haldin. Skálinn er farinn að láta á sjá og kominn tími á endurbætur. Ýmsir hafa rætt að skálann megi nýta betur, einkum að vetrarlagi. Draumur minn er sá að sveitarfélagið reisi fjölnota hús á Hlíðarenda sem nýta má allt árið fyrir ýmis félög og starfsemi.

Skagafjörður – áfangastaður kylfinga
Við í Golfklúbbi Skagafjarðar (GSS) leggjum okkar af mörkum til að fjölga ferðamönnum í Skagafirði. Við bjóðum upp á fjölda móta fyrir börn og fullorðna þar sem við fáum gesti víðs vegar að. Konur í GSS standa fyrir árlegu golfmóti sem nýtur mikilla vinsælda. Golfskálinn er opinn júní til ágúst og völlinn hefur verið hægt að spila í 5-6 mánuði á ári undanfarin ár. Í vetur hefur GSS eignast nýja vinaklúbba um land allt, en félagsmenn þeirra fá afslátt þegar þeir spila hjá okkur og gagnkvæmt. Við gerum okkur vonir um að kylfingar vinaklúbba muni heimsækja Skagafjörð í auknum mæli á komandi árum til að glíma við völlinn fagra og njóta alls hins góða sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða.  Skagafjörður er áfangastaður kylfinga. 

50 ára afmæli – hlýðum Víði
GSS fagnar 50 ára afmæli á árinu. Við munum að sjálfsögðu halda upp á það með ýmsum hætti, s.s. afmælisriti, afmælismóti og afmælishófi, þó þannig að allir hlýði Víði (sem er liðtækur kylfingur). Við höfum áhuga á að fjölga í góðum hópi og bjóðum nýliða velkomna.  Fram undan er nýliðanámskeið sem hefst væntanlega í byrjun júní og verður auglýst í Sjónhorni.  Nánari upplýsingar veitir formaður nýliðanefndar, Dagbjört Rós (dagbjort79@live.com).

Starf GSS byggist að miklu leyti á sjálfboðavinnu. Við njótum velvilja sveitarfélagsins og fyrirtækja í Skagafirði. Fyrir það þökkum við kærlega. Án stuðnings fyrirtækja og sjálfboðavinnu félagsmanna væri starfið óhugsandi. Þegar þetta er skrifað er útlit fyrir að golf megi stunda með nokkuð hefðbundnum hætti í sumar. Við í GSS erum því bjartsýn og hlökkum til starfsins.

Kristján Bjarni Halldórsson, formaður GSS

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir