Ja, nú var kátt í Síkinu!
Tindastóll og KR mættust á Króknum í kvöld í Dominos-deildinni í körfubolta. KR-ingar eru við toppinn í deildinni en Stólarnir hafa átt litlu láni að fagna og vermdu botnsætið fyrir leikinn. En ekki varð þetta leikur kattarins að músinni því rimman var hnífjöfn og í raun ótrúlega spennandi og skemmtileg. Lokatölur voru 72-67 fyrir Tindastól og ætlaði þakið nánast af Síkinu undir lokin þegar stuðningsmenn Stólanna hvöttu og fögnuðu sínum mönnum.
Stólarnir byrjuðu leikinn betur en byrjunarliðið skipuðu Valentine, Gibson, Helgi Margeirs, Helgi Viggós og Pétur Rúnar. Strákarnir komust í 4-0 en það var enginn að fara að stinga neitt af í kvöld, leikurinn allan tímann í járnum. Varnarleikur Tindastóls var frábær í 40 mínútur en það má segja að sóknarleikur beggja liða hafi verið ansi brokkgengur og talsvert um mistök. Gestirnir voru skrefinu á undan í fyrri hálfleik en Stólarnir voru ólseigir með Drew Gibson í fínu formi en kappinn sem hefur verið að leika meiddur sýndi frábæra takta. Tindastólsmenn voru ískaldir fyrir utan 3ja stiga línuna í fyrri hálfleik og voru sjaldnast nálægt því að setja niður. En með mikilli baráttu jöfnuðu Stólarnir leikinn fyrir hlé og staðan 33-33.
Í síðari hálfleik höfðu heimamenn frumkvæðið og voru yfir meira og minna allan hálfleikinn. Mestur varð munurinn 8 stig en vanalega 2-5 stig. Helgi Rafn lenti í villuvandræðum fljótlega en það var sama hver kom inn fyrir Stólana, allir skiluðu varnarleiknum með sóma. Þröstur Leó kom sterkur inn og munar um minna. Fjórði leikhluti var hreint út sagt geggjaður. Sem fyrr gekk liðunum ekkert of vel í sókninni, enda barist um hvern bolta og engin grið gefin. Brynjar Karl hélt KR inni í leiknum, var öflugur innan sem utan teigs, en kanar þeirra KR-inga voru ákaflega daprir og nánast farþegar. Brynjar Karl setti niður nokkrar fáránlegar körfur á lokamínútunum og jafnaði leikinn þegar um hálf mínúta var eftir 67-67. Stólarnir fóru í sókn og Hreinsi Birgis skilaði "sallarólegur" niður þristi sömuleiðis og aðeins 14 sekúndur eftir á klukkunni. KR-ingar reyndu að finna Brynjar Karl fyrir utan 3ja stiga línuna en Stólarnir gáfu engin færi á sér og unnu boltann, brotið var á Gibson sem skoraði úr báðum vítum sínum og KR-ingar þar með sigraðir. Lokatölur 72-67 og allt löngu orðið vitlaust!
Lið Tindastóls var einbeitt í kvöld og varnarleikurinn var númer 1, 2 og 3. Gibson átti sennilega sinn besta leik með Stólunum og þá var guttinn Pétur Rúnar flottur, spilaði líkt og hann væri þjakaður af reynslu. Helgi Rafn fór fyrir sínum mönnum og barðist um hvern bolta en hann kom reyndar lítið við sögu í fjórða fjórðungi eftir að hafa lent í villuvandræðum. En sem fyrr segir var sama hver kom ínn á, það var augljóslega á dagskrá að ná í 2 stig og þau komu í hús og Stólarnir nú í 11. sæti, með jafn mörg stig og ÍR.
Jamm, það er gaman að vinna KR.
Tindastóll: Drew Gibson 20, George Valentine 15, Þröstur Leó Jóhannsson 15, Helgi Rafn Viggóss 9, Hreinn Gunnar Birgisson 6, Helgi Freyr Margeirsson 5 og Pétur Rúnar Birgisson 2.
KR: Brynjar Þór Björnsson 25, Kristófer Acox 17, Finnur Atli Magnússon 13, Darshawn McClellan 4, Martin Hermannsson 4 og Brandon Richardson 4.