Jafntefli hjá Drangey og Magna

Það var hörkuleikur á Sauðárkróksvelli þegar Drangey tók á móti toppliði Magna frá Grenivík í 3. deildinni. Leikurinn var hin besta skemmtun en þegar upp var staðið skiptu liðin stigunum á milli sín, lokatölurnar 0-0.

Dómari leiksins, Marinó Þorsteinsson, fór mikinn í leiknum en hann dæmdi löglegt mark af Drangey, var of snöggur að flauta útspark en leikmaður Drangeyjar kom boltanum fyrir markið áður en hann fór aftur fyrir og heimamenn skoruðu – en markið semsagt dæmt af. Í blálokin dæmdi hann síðan vítaspyrnu á Bjarka Árna vegna hættusparks en eftir mótmæli leikmanna Drangeyjar skipti hann um skoðun og dæmdi óbeina aukaspyrnu.

Drangey er með 12 stig eftir 9 leiki en lið Magna er enn ósigrað í deildinni, hefur unnið 5 leiki og gert 4 jafntefli. Í næstu viku sækir lið Drangeyjar KB heim.

Fleiri fréttir