Jarðskjálftar í Skagafirði
Það er ekki mjög algengt að jörð hristist í Skagafirði en um klukkan hálftólf í kvöld og rétt eftir miðnætti mátti finna fyrir þeim. Á korti veðurstofunnar sést að nokkuð margir skjálftar hafa orðið út frá Tröllaskaga og einn rauður og myndarlegur punktur er á miðjum Skagafirði.
Kort Veðurstofunnar rét eftir miðnættið sem sýnir jarðhræringarnar.
Punkturinn þýðir að þar hafi orðið skjálfti undir 3 og rauði liturinn táknar að ekki séu liðnar fjórar stundir frá honum. Þrír skjálftar yfir 3 hafa átt sér úti fyrir Tröllaskaga nærri Siglufirði og stærstur þeirra um 4. Á Sauðárkróki fann fólk vel fyrir skjálftunum enda hristist allt lauslegt í húsum og vel glamrar í bollastellum í skápum.