Jóhann Björn Íþróttamaður Skagafjarðar 2013 - Myndir
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, frjálsíþróttamaður úr Tindastóli, var valinn Íþróttamaður Skagafjarðar 2013 við hátíðlega athöfn sl. föstudagskvöld. Jóhann, sem er 18 ára gamall, hefur þegar skipað sér í fremstu röð íslenskra spretthlaupara og var m.a. valinn í landslið Íslands sem keppti í sumar á Norðurlandameistaramóti 19 ára og yngri. Á Tindastóll.is segir að af afrekum Jóhanns megi nefna, að hann setti á árinu nýtt skagfirskt héraðsmet í 200m hlaupi karla innanhúss.
Í öðru sæti í valinu varð knattspyrnukonan Bryndís Rut Haraldsdóttir sem varði mark íslenska U19-landsliðsins í sumar.
Eftirtaldir voru einnig tilnefndir:
Íþróttamaður UMSS var valinn Föstudaginn 27 Desember s.l
Jóhann Björn Sigurbjörnsson Frjálsíþróttakappi var valinn íþróttamaður UMSS 2013 og hlaut hann flest stig
Þeir sem voru í kjörinu voru eftirtaldir:
Helgi Rafn Viggósson Körfuknattleiksdeild UMFT
Sigurjón Þórðasson Sunddeild UMFT
Birna Sigurðardóttir Skíðadeild UMFT
Jóhann Björn Sigurbjörnsson Frjálsíþróttadeild UMSS
Mette Camilla Moe Mannseth Hestamannafélagið Svaði
Árný Lilja Árnadóttir Golfklúbbur Sauðárkróks
Helgi Rafn var við sama tækifæri kjörinn íþróttamaður Tindastóls.
Blaðamaður Feykis var athöfnina sem fram fór í Húsi frítímans og tók meðfylgjandi myndir:
Tilkynnt var um val á íþróttamanni Skagafjarðar og íþróttamanni Tindastóls 2013 við hátíðlega athöfn í Húsi frítímans.
Þau voru tilnefnd sem íþróttamenn Tindastóls:
Sigurjón Þórðarson, sundmaður, Helgi Rafn Viggósson, körfuknattleiksmaður, Bryndís Rut Haraldsdóttir, fótboltakona, Birna María Sigurðardóttir, skíðakona, Atli Arnarsson knattspyrnumaður og Jóhann Björn Sigurbjörnsson, frjálsíþróttamaður.
Það var Helgi Rafn sem hreppti titilinn að þessu sinni og hér tekur hann við verðlaunagripum sem Inga Huld, stjórnarkona í Tindastóli, afhendir honum.
Auk þess að vera frábær fyrirliði og íþróttamaður þykir Helga Rafn til fyrirmyndar innan vallar sem utan, eins og fram kom í tilnefningu hans.
Þetta unga og efnilega íþróttafólk hlaut viðurkenningar fyrir sinn árangur. F.v: Margrét Ósk Bergþórsdóttir, Hildur Þrastardóttir, Tóbías Freyr Sigurjónsson, Vésteinn Karl Vésteinsson, Sonja Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, Elín Sveinsdóttir, Bríet Lilja Sigurðardóttir, Viðar Ágústsson, Telma Ösp Einarsdóttir, Sólveig Birta Viðarsdóttir, Helga Þórsdóttir-tók á móti viðurkenningu fyrir bróðir sinn Pálma Þórsson, Reynir Freyr Hauksson, Hákon Ingi Rafnsson og Ester María Eiríksdóttir.
Þessi voru í kjöri sem íþróttamenn Skagafjarðar. Á myndina vantar Mette Mannseth.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson frjálsíþróttamaður hlaut titilinn.
Hinn 18 ára gamli spretthlaupari hefur þegar skipað sér í fremstu röð frjálsíþróttamanna Íslands og var á þessu ári valinn í Afrekshóp unglinga FRÍ, en í þeim hópi eru þeir sem teljast bestu frjálsíþróttamenn landsins á aldrinum 15-22 ára og telur hópurinn í dag 21 íþróttamann.