Jóhanna og Steingrímur - Svariði!

Byggðarráð Skagafjarðar fjallaði í dag á fundi sínum um bréfaskriftir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra til forætisráðherra en eins og áður hefur komið fram á Feyki.is hefur bréfi frá 21. nóvember 2011 ekki verið svarað á fullnægjandi hátt að mati SSNV. Þar er óskað eftir samstarfi um sértækar aðgerðir í landshlutanum.

Lögð var fram bókun sem er á sömu nótum og sveitarstjórnir í Austur Húnavatnssýslu sendu frá sér í gær.

Bókunin er svohljóðandi:´

"Skorað er á forsætisráðherra og oddvita ríkisstjórnar Íslands að svara ákalli landshlutans og stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um aðgerðir í atvinnu- og byggðamálum. Stjórn SSNV hefur undanfarna mánuði ítrekað óskað eftir fundi með forsætisráðherra án árangurs til að ræða mjög erfiða stöðu byggða á Norðurlandi vestra og leggja fram tillögur til lausna á þeim vanda. Ekki er hægt að una slíkum samskiptum á milli stjórnsýslustiga og ámælisvert að æðstu ráðmenn landsins skuli koma þannig fram við heilu landshlutana. Á skömmum tíma hafa verið flutt burtu eða lögð af 45 opinber störf í Skagafirði og í ljósi nýsamþykktra fjárlaga stefnir í að fyrir árslok hafi 65 stöðugildi horfið úr héraði á árunum 2008-2012. Ábyrgð stjórnvalda er því mikil eins og þær tölur sýna og hægt að tengja fólksfækkun beint við stjórnvaldsaðgerðir sem bitnað hafa á svæðinu. Við það bætist veruleg skerðing á fjárframlögum til verkefna og þjónustu á svæðinu umfram aðra landshluta. Ekki þolir neina bið að gripið verði til aðgerða til snúa þessari þróun við með samhentu átaki stjórnvalda og heimamanna."

Fleiri fréttir