Johnson til liðs við Stólana
Á vef körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að Stólarnir hafa tryggt sér starfskrafta bakvarðarins Tarick Johnson út þetta tímabil og verður hann því þriðji erlendi leikmaðurinn í liði Tindastóls en kappinn er með breskt vegabréf. Johnson er um 190 cm á hæð og getur spilað hvort sem er stöðu leikstjórnanda eða skotbakvarðar.
Tarick er reyndur leikmaður, verður 32 ára á þessu ári og hefur spilað með mörgun liðum í Evrópu m.a. Tarragona og Gijon á Spáni, Apoel á Kýpur, AGOR í Grikklandi svo eitthvað sé nefnt. Hann lék nú síðast með úrvalsdeildarliðinu Fribourg í Sviss.
Sem fyrr segir er Tarrick þriðji erlendi leikmaðurinn í leikmannahópi Tindastóls, en aðeins má tefla fram tveimur á gólfinu í einu. Með tilkomu hans þéttist leikmannahópur liðsins til muna núna fyrir lokabaráttuna. Hinir tveir erlendu leikmenn Stólanna eru George Valentine og Roburt Sallie en Drew Gibson leikur ekki meira með Tindastólsmönnum en kappinn hefur átt við þrálát meiðsli að stríða.