Jól í bakaríinu!
Það sem boðar komu jólanna svo um munar í huga Fröken Fabjúlöss er þegar jólavörurnar eru settar í hillurnar í Sauðárkróksbakaríi! Þau bjóða upp á allskonar kaffibolla, kökudiska, mjólkurkönnur og annað dúllerí!
Þar sem Fröken Fabjúlöss á við ákveðið blæti að stríða þegar kemur að jólakaffikönnum, bollum og öllu í þeim dúr, þá eiga þessar vörur svo sannarlega upp á pallborðið! Það hreinlega eru ekki til nógu mikið af þessum dásemdum í heiminum og svo sannarlega ekki í eldhússkáp Fabjúlössmans, og þessvegna víkka sjáöldrin og jólahlýja magnast um þónokkrar gráður þegar Róbert, Raggý og félagar draga fram dásemdirnar í bakaríinu þar sem jólavörurnar þeirra eru ó svo fallegar!.
Það er ekkert betra en að sitja inni í hlýjunni með jólaljósin í gluggunum og horfa út í snjókomuna á meðan rjúkandi kaffið yljar kroppinn- drukkið úr fallegri jólakönnu! Ef skortur er á jólaskapi, þá er þetta ein besta leiðin til að framkalla það! Og já, í þessum snjóstormi er Fröken Fabjúlöss einmitt hrokkin í jólagírinn gott fólk!
