Jóladagur – Messur í Skagafirði
Í dag, jóladag, verða hátíðarguðþjónustur víða í skagfirskum kirkjum. Klukkan 13:00 hefst guðþjónustan í Goðdalakirkju, organisti Thomas R. Higgerson en Ingibjörg Rós Jónsdóttir syngur einsöng. Í Hóladómkirkju hefst hún kl 14:00 og verður boðið upp á messukaffi á biskupssetrinu eftir guðsþjónustu. Í Fellskirkju verður einnig hátíðarguðsþjónusta kl 14 í dag, jóladag.
Í jólamessu í Sauðárkrókskirkju mun kirkjukórinn leiða söng og börn úr 6. bekk Árskóla syngja. Þá ætlar Rannveig Sigrún að syngja og fermingarbörn lesa. Góð stund fyrir alla fjölskylduna og hefst kl 14.
Klukkan 16:00 verða hátíðarguðþjónustur í Viðvíkurkirkju og Silfrastaðakirkju en þar mun Kolbrún Erla Grétarsdóttir syngja einsöng og organisti er Sveinn Árnason.