Jólastemning á Sauðárkróki í dag

Jólafjör við Kirkjutorg árið 2007. Mynd:Skagafjordur.is
Jólafjör við Kirkjutorg árið 2007. Mynd:Skagafjordur.is

Það verður sannkölluð jólastemning á Sauðárkróki í dag en þá verða ljósin tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi þar sem verður hátíðadagskrá en auk þess verða margar verslanir opnar og fjölmargt annað um að vera.

Á þessu ári eru 70 ár liðin frá því að Sauðárkrókur fékk kaupstaðarréttindi og í tilefni þess býður Sveitarfélagið Skagafjörður upp á afmælisköku og kaffi í húsnæði Náttúrustofu frá kl. 14:00-15:30.

Jólaljósin tendruð á Kirkjutorgi kl. 15:30. Jólatréð er ræktað í heimabyggð og kemur úr skógi Skógræktarinnar í Reykjarhóli en þar hófst gróðursetning árið 1947 eða sama ár og Sauðárkrókur fékk kaupstaðarréttindi. 

Á Kirkjutorginu mun Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðarráðs flytja hátíðarávarp, barnakór Varmahlíðarskóla syngja jólalög og Lydía Einarsdóttir syngja lagið Rúdolf með rauða nefið við undirleik Stefáns Gíslasonar.  Þá syngur hinn landsþekkti tónlistarmaður, Pálmi Gunnarsson, nokkur lög við undirleik Stefáns Gíslasonar og hljómsveitar og loks tendra tveir nemendur Varmahlíðarskóla ljósin á trénu. 

Ekki er svo loku fyrir það skotið að einhverjir jólasveinar leggi leið sína í bæinn.

Sveitarfélagið Skagafjörður tekur árlega saman yfirlit yfir helstu viðburði á aðventu og um jól og áramót. Dagskráin er birt vikulega í Sjónhorninu sem dreift er á öll heimili á Norðurlandi vestra. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir