Jólasveinar bjóða heim í Dimmuborgir

Jólasveinarnir í Dimmuborgum bjóða gestum og gangandi í heimsókn í helli í Dimmuborgum á Jónsmessunótt og verður heimboðið 23. júní frá kl. 22-01.00. Þá verður mikil gleði þar sem jólasveinarnir taka á móti gestum, spjalla, syngja og segja sögur. -Það er óhætt að segja að það ríkir mikil spenna í helli jólasveinanna vegna þessa heimboðs en þeir eru á fullu að vinna í undirbúningi, segir í tilkynningu frá Mývatnsstofu.

Til að hjálpa gestum að finna hellinn verða sett upp skilti í Dimmuborgum sem vísa veginn og settur verður upp baukur þar sem gestir eldri en 18 ára greiða kr.1.000,- fyrir heimsóknina.

Jólasveinarnir hvetja alla til að taka nóttina frá og koma í heimsókn í Dimmuborgir. Nánari upplýsingar verða birtar á vef Mývatnsstofu www.visitmyvatn.is

Fleiri fréttir