Jólatrén rjúka út
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur að undanförnu staðið vaktina í hinni árlegu jólatrjáasölu þar sem boðið er upp á skínandi falleg og lifandi jólatré. Eins og áður er salan staðsett í syðri bragganum við Verslunina Eyri og því nóg pláss til að velja rétta tréð.
Í dag föstudag og morgun laugardag 22. des. verður opið frá klukkan 13 – 18 en á sunnudaginn hefst salan klukkan 12 og stendur til klukkan 18. Utan þess tíma er hægt að ná í Skúla Jóns í síma 864 5305.