Jólatrén sótt í skóginn
Rúmlega 20 skógræktarfélög um land allt hafa boðið fólki að koma í skóginn á aðventunni og höggva eigið jólatré gegn vægu gjaldi. Þetta er um þriðjungur allra skógræktarfélaga á landinu og hefur þeim fjölgað nokkuð frá síðasta ári þegar ein 15 félög buðu upp á þessa þjónustu.
Ágóði af jólatrjáasölu skógræktarfélaganna rennur allur til ræktunar og umhirðu þessara skóga og uppbyggingar aðstöðu í þeim en fyrir hvert jólatré sem selt er má reikna með að hægt verði að gróðursetja 30-40 ný tré.
Í Hólaskógi var opið síðasta sunnudag og kom fjöldi fólks til að höggva sín jólatré enda nýtur sá siður æ meiri vinsælda hér á landi og er orðinn ómissandi liður í jólaundirbúningi margra fjölskyldna.