Jón Bjarnason fer ekki fram fyrir VG

Jón Bjarnason oddviti Vinstrihreyfingarinnar grænt framboð í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á framboðslista VG í komandi Alþingiskosningum. Við Alþingiskosningar 2009 fékk Vinstrihreyfingin grænt framboð góða kosningu í Norðvesturkjördæmi og 3 menn á þing.

-Enginn  vafi er á að einörð stefna og áherslur flokksins og okkar sem skipuðum þá forystusveit, átti hljómgrunn og stuðning  meðal íbúa  kjördæmisins og raunar langt út fyrir mörk þess. Kjörorðin  -vegur til framtíðar- vörðuð trausti og trúnaði voru aðalsmerki Vg í þeirri kosningabaráttu og eftir þeim gildum hef ég starfað, segir Jón á bloggi sínu en þar gefur hann yfirlýsingu um að hann bjóði sig ekki fram fyrir VG.

„Ég hef setið á Alþingi sem fulltrúi VG frá því flokkurinn fékk fyrst kjörna menn á þing 1999 og átt virkan hlut í að móta grunnstefnu flokksins og áherslur ásamt mörgu öðru góðu fólki.

Það hafa orðið mér vonbrigði hvernig haldið hefur verið á mörgum stefnumálum VG síðustu misseri og vikið frá þeim gildum sem hann var stofnaður um.

Afstaða mín og skoðanir í þeim málum eru öllum kunnar. Ég nefni hér umsóknina um aðild að ESB þvert á grunnstefnu flokksins og gefin kosningaloforð, niðurskurð til velferðarmála, ásamt því hvernig hert hefur verið með margvíslegum hætti að íbúum á landsbyggðinni“, segir Jón í yfirlýsingu sinni.

Þótt hann hafi nú ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs fyrir VG við næstu alþingiskosningar segist Jón áfram leggja sitt af mörkum og berjast fyrir þær hugsjónir og grunngildi sem hann hefur verið talsmaður fyrir og starfað eftir.

Fleiri fréttir