Jón Helgi Sigurgeirsson sigraði í Bautamótinu í tölti

Skagfirðingar voru sigursælir í Bautamótinu í tölti sem haldið var í skautahöllinni á Akureyri laugardagskvöldið 16. febrúar sl. Alls  tóku 52 keppendur þátt í mótinu og á heimasíðu hestamannafélagsins Léttis segir að það hafi gengið hratt og vel fyrir sig.

Úrslitin voru sterk segir á heimasíðunni. Teitur Árnason, sem nýlega var í knapakynningu í Feyki fyrir KS deildina, vann B-úrslitin og Jón Helgi Sigurgeirsson frá Varmalandi sigraði A-úrslitin og fylgir með að hann hafi verið fyllilega vel að sigrinum kominn. Í öðru sæti varð Sölvi Sigurðarson á Þokkadís frá Varmalandi.

A-úrslit.

  • 1. Jón Helgi Sigurgeirsson Töfri frá Keldulandi  7.92
  • 2. Sölvi Sigurðarson Þokkadís frá Varmalandi  7.83
  • 3. Guðmundur Karl Tryggvason Rósalín frá Efri-Rauðalæk  7.50
  • 4-5. Teitur Árnason Ormur frá Sigmundarstöðum  7.33
  • 4-5. Hans Friðrik Kjerúlf Flans frá Víðivöllum Fremri  7.33

B -úrslit.

  • 1. Teitur Árnason Ormur frá Sigmundarstöðum   7.42
  • 2. Matthías Eiðsson Vaka frá Hólum  7.25
  • 3. Baldvin Ari  Guðlaugsson Orka frá Efri-Rauðalæk   6.88
  • 4. Guðmundur Karl Tryggvason Skorri frá Skriðulandi  6.75
  • 5. Egill Þórir Bjarnason Sýn frá Gauksstöðum  6.58
  • 6. Sölvi Sigurðarson Hrókur frá Glæsibæ  6.33

Myndir frá mótinu er hægt að skoða HÉR

Fleiri fréttir