Jón Páll steytti á Innstalandsskerinu
Kraftmesti bátur landsins steytti á skeri í morgun rétt norðan Sauðárkróks en hann var á leið til Akureyrar frá Reykjavík með viðkomu á Króknum í nótt. Báturinn sem ber nafn hins kunna kraftakarls Jóns Páls Sigmarssonar á að sigla með ferðamenn í sumar frá Akureyri en gert var ráð fyrir að byrja um sjómannadagshelgina.
-Við vorum að fara til Akureyrar í morgun og lendum á skeri hérna rétt fyrir utan og brjótum bæði hældrifin, segir Hermann Ragnarsson skipstjóri.
Bátar sem þessi njóta mikilla vinsælda meðal ferðamanna og eru þeir staðsettir víða um landið. Að sögn Hermanns er tjónið mikið og gæti viðgerð tekið 2-3 vikur.
Umfjöllun um bátinn var í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gær og er hægt að sjá hann HÉR en umfjöllunin hefst þegar rúmlega 9 mínútur eru liðnar af þættinum.