Jónsi hættir þjálfun Stólastúlkna

Jónsi til hægri og Guðni til vinstri. Jónsi fer nú frá borði en Stólaskútan siglir áfram á vit nýrra ævintýra í efstu deild. MYND: ÓAB
Jónsi til hægri og Guðni til vinstri. Jónsi fer nú frá borði en Stólaskútan siglir áfram á vit nýrra ævintýra í efstu deild. MYND: ÓAB

Feyki barst nú í morgun fréttatilkynning frá Knattspyrnudeild Tindastóls en þar kemur fram að Jón Stefán Jónsson, annar þjálfara kvennaliðs Tindastóls sem tryggði sér í sumar sæti í efstu deild, hefur ákveðið að láta af störfum og mun því ekki þjálfa Stólastúlkur í Pepsi Max deildinni næsta sumar. Jónsi býr með sinni fjölskyldu á Akureyri þar sem hann starfar sem íþróttafulltrúi Þórs sem sömuleiðis er með lið í Pepsi Max deildinni í slagtogi með grönnum sínum í KA.

Fréttatilkynningin er svohljóðandi: „Jón Stefán Jónsson, eða bara Jónsi eins og hann er alltaf kallaður, hefur ákveðið að láta af störfum sem annar af aðalþjálfurum kvennaliðs Tindastóls. „Eftir þrjú ár af ótrúlegum ævintýrum finnst mér kominn tími til að láta staðar numið. Mér finnst mikilvægt að stelpurnar okkar fái þjálfara sem getur verið búsettur á Króknum og þar sem algjörlega útséð er um það v/vinnu minnar þá ákvað ég að setja hagsmuni stelpnanna framar mínum eigin. Það er ekkert smá erfitt að skilja við stelpurnar á þessum tímapunkti, bæði vegna þess að ég er sannfærður um að ævintýri þeirra og Tindastóls í efstu deild sé bara rétt að byrja og vegna þess að það hefur verið draumur minn að þjálfa í efstu deild sem aðalþjálfari. Ég vil þakka stelpunum sjálfum og öllum sem standa að liðinu, þá sérstaklega okkar frábæru stjórn, kvennaráði og stuðningsmönnum fyrir æðislegan tíma. Guðna þakka ég ómetanlegt samstarf en við höfum bundist órjúfanlegum vinaböndum til lífstíðar. Loks vil ég minnast á þá Feykismenn, öflug umfjöllun um liðið okkar hefur svo sannarlega haft mikið að segja. Ég hlakka mikið til að fylgjast með Guðna og stelpunum næsta ár í Pepsi Max deildinni. Sjáumst á vellinum, takk fyrir mig, áfram Tindastóll!

Stjórn Tindastóls vill þakka Jónsa fyrir ómetanlegt starf og mikla fórnfýsi fyrir félagið sl. þrjú ár og óskar honum góðs gengis í komandi verkefnum. Leit er hafin af eftirmanni hans og verður vonandi frétta að vænta af þeim málum fljótlega.  Framundan er barátta í efstu deild og er vinna við skipulagningu deildarinnar innan sem utan vallar fyrir næsta ár, á þessum erfiðu tímum í rekstarumhverfi íþróttafélaga, þegar hafin.“

Jón Stefán á nú stóran sess í sögu Tindastóls og hjörfum stuðningsmanna eftir sögulegan árangur síðustu sumur. Feykir þakka Jónsa fyrir frábær samskipti í gegnum tíðina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir