Jónsmessuhátíð á Hofsósi 14. til 17. júní
Undirbúningur fyrir Jónsmessuhátíð á Hofsósi er nú komin vel af stað en hátíðin verður haldin dagana 14. til 17. júní í ár. Þetta mun vera tíunda sinn sem hátíðin er haldin en fyrsta hátíðin með þessu sniði var haldin árið 2003. Mikið verður því um að vera á Hofsósi á Jónsmessuhátíð þetta árið en búist er við miklu fjölmenni á hátíðina að vanda.
-Fastir dagskráliðir verða að sjálfsögðu á sínum stað eins og síðustu ár, segir Kristján Jónsson formaður hátíðarnefndar. -Jónsmessuganga, kjötsúpa og kvöldvaka á föstudag, fótboltamót, dráttarvélakeppni, tjaldmarkaður og barnaskemmtun á laugadag og fleira. Síðan mun hátíðin enda með stórdansleik á laugadagskvöldi þar sem hið landsfræga juróvisjonband Vinir Sjonna munu leika fyrir dansi fram á nótt, segir Kristján og lofar skemmtilegri Jónsmessuhelgi og hvetur fólk til að taka hana frá í tíma og mæta í fjörið á Hofsósi. Reiknað er með að endanleg dagskrá hátíðarinnar verði tilbúin í byrjun maí.