Kanna hagkvæmni þess að eiga sorpmóttökustöð

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar hefur falið sveitarstjóra að ganga til viðræðna við forsvarsmenn Flokku ehf. á Sauðárkróki um möguleg kaup sveitarfélagsins á móttökustöð fyrirtækisins að Borgarteig 12. Er það liður í hagkvæmnikönnun vegna fyrirhugaðs útboðs sorphreinsunar í Skagafirði.
Gunnar Svavarsson og Páll Höskuldsson frá Eflu verkfræðistofu, ásamt fulltrúum úr umhverfis- og samgöngunefnd, sátu fund byggðaráðs í júní sl. þar sem farið var yfir ýmis gögn og álitamál er varða fyrirhugað útboð sorphirðu í Skagafirði. Þar var samþykkt að vinna málið áfram út frá þeim línum sem lagðar voru á fundinum. Í síðustu viku var svo sveitarstjóra falið að ganga til viðræðna við forsvarsmenn Flokku ehf. um möguleg kaup á móttökustöð fyrirtækisins að Borgarteig 12.
Flokka er dótturfyrirtæki Ó.K. gámaþjónustu sem er í eigu hjónanna Ómars Kjartanssonar og Brynhildur Sigtryggsdóttur og var stofnuð 1. júní 2006. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að ári síðar hafi bygging móttökustöðvarinnar að Borgarteig 12 hafist en starfsemin hófst 1. mars 2008. Í kjölfarið var gamla gámasvæðinu lokað en Flokka tekur á móti öllum úrgangi og kemur honum í lóg.
Til þess að tryggja að móttaka og flokkun sorps verði áfram staðsett í Skagafirði er þessi leið í skoðun en enginn veit hver mun sjá um þau mál fyrr en eftir útboð.
Gísli Sigurðsson, formaður byggðaráðs, segir að verið sé að skoða alla möguleika í útboðsferlinu og einn þeirra hvort hagkvæmt sé fyrir sveitarfélagið að eiga móttökustöð á Sauðárkróki. „Verið er að skoða ýmsar útfærslur til að gera sorphreinsun sem hagkvæmasta og besta í sveitarfélaginu. Engin ákvörðun hefur verið tekin í þessu máli, einungis verið að skoða alla möguleika,“ segir Gísli.