Kannabisræktun í heimahúsi á Króknum
Lögreglan á Sauðárkróki gerði upptækar plöntur, tæki og tól til kannabisræktunar í heimahúsi í morgun. Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns hafa eigendur komið sér upp góðum tækjum og kunnað vel til verka.
Alls voru plönturnar fimm að tölu, allt upp í 80 sm háar. Málið er í rannsókn.
