Kántrýskotinn karlmaður
Á Rás 2 heyrist þessa dagana nýtt kántrýlag þar sem Steinn Ármann Magnússon syngur um ástfanginn kántrýskotinn mann. Lagið er al-skagfirskt eftir Fúsa Ben sem einnig á textann ásamt félaga sínum úr Contalgen Funeral, Andra Sigurðssyni. Lagið er komið á YouTube og nýtur mikilla vinsælda. Feykir sendi Fúsa nokkrar spurningar og forvitnaðist um lagið.
Hvað kemur til að þú semur kántrýlag? Ég veit það hreinlega ekki. Ég hlusta ekki á kántrý svona yfir höfuð en stofnaði þó kántrýhljómsveitina Fúsaleg Helgi með honum Helga Sæmundi og er trommari í hljómsveitinni Contalgen Funeral sem er einhverskonar kántrý/blús.
Er diskur á leiðinni? Það er önnur sólóplata í vinnslu og klárast hún þegar ég fer að finna tíma fyrir sjálfan mig en hvort það verði kántrýplata, það er ekki gott að segja
Er lagið komið í spilun á útvarpsstöðvum? Þeir eru eitthvað farnir að spila það á Rás 2 en ég stefni hátt og vona að það fari einn daginn á vinsældarlistann
Hvernig kemur það til að Steinn Ármann syngur lagið? Ég vildi fá þessa dimmu, kántrý, grófu rödd og einhvern sem gæti túlkað lagið skemmtilega, þannig að þá kom eiginlega enginn annars til greina en Steinn Ármann. Hann tók mjög vel í þetta svo við létum vaða og hann talaði líka fyrir Kela í stundinni okkar sem er býsna fyndið
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? Ja kannski að ég vil þakka góðar móttökur á laginu og fólk má endilega hjálpa mér að koma þessu betur á framfæri. Rokk og ról.
Lagið má heyra hér fyrir neðan.
http://www.youtube.com/watch?v=g7vQZliLEI4