Karlakórinn Heimir leggur land undir fót
Karlakórinn Heimir ætlar halda tónleikaröð sem heitir „Svífðu með“ vítt og breitt um landið, þ.e. á Akureyri, Akranesi, Reykjavík, Eskifirði og Egilsstöðum. Tónleikarnir „Svífðu með“ voru haldnir í fyrsta sinn á þrettándaskemmtun í Miðgarði í janúar sl. við mjög góðar undirtektir.
Tónleikaröðin hefst í Hofi á Akureyri nk. sunnudag kl. 16 og verða þeir tónleikar með sama sniði og á Þrettándaskemmtun Karlakórsins í Miðgarði, með þeirri breytingu þó að Óskar Pétursson verður fjarri góðu gamni. Á heimasíðu kórsins segir að það skarð hafi þó verið vel fyllt því stóri bróðir Óskars, Pétur Pétursson frá Álftagerði, verður með þeim ásamt heimamanninum Hjalta Jónssyni. Guðrún Gunnarsdóttir og Ari Jóhann Sigurðsson verða á sínum stað.
Miðasala á tónleikana í Hofi er á www.midi.is og í Menningarhúsinu Hofi.
Karlakórinn fer svo suður yfir heiðar 1. mars og byrja á því að halda tónleika í Tónberg á Akranesi. Þann 2. mars verða haldnir tveir tónleikar í Langholtskirkju, þeir fyrri kl. 14 og seinni kl. 17. Að sögn Jóns Sveinssonar í stjórn karlakórsins syngja Guðrún Gunnarsdóttir, Óskar Pétursson og Ari Jóhann Sigurðsson einsöng með kórnum fyrir sunnan.
„Svífðu með“ heldur svo yfir á austurlandið þann 13. apríl og þá heldur kórinn tónleika á Eskifirði kl. 14 og Egilsstöðum kl. 20:30, en án Óskars í þetta sinn.
Hér má sjá stiklu frá Þrettándaskemmtun kórsins í Miðgarði:
http://www.youtube.com/watch?v=t73_8ASVMhI