Kaupfélag Skagfirðinga hagnaðist um 2,2 milljarða

Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga svf. var haldinn þann 20. apríl síðastliðinn í Selinu á Sauðárkróki. Hagnaður á samstæðureikningi félagsins fyrir árið 2012 var kr. 2.256 milljónir eftir skatta, sem er svipuð rekstrarniðurstaða og á fyrra ári, en þá var hagnaður félagsins kr. 2.452 milljónir.

 

Heildarvelta samstæðunnar var um 27 milljarðar, sem er 3% hækkun frá fyrra ári. Rekstrarafkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði var um fjórir milljarðar, sem er svipaður rekstrarárangur og árið á undan. Heildarfjöldi starfsmanna var rúmlega 700 og heildargreiðsla fyrir laun og launatengd gjöld var 5,8 milljarðar. Efnahagsreikningur félagsins er 30.313 milljónir og eiginfjárhlutfall 64%. Kaupfélag Skagfirðinga svf. þakkar öllu starfsfólki, félagsfólki og viðskiptavinum gott og ánægjulegt samstarf og viðskipti á árinu 2012.

Fleiri fréttir