Keilir á ferð og flugi um landið
Flugakademía Keilis verður á Sauðárkróki að kynna flugnám og annað námsframboð við skólann, á morgun þriðjudaginn 22. maí, kl. 10 - 13. -Við notum tækifærið og sækjum áhugaverða staði heim, hittum nemendur, bjóðum áhugasömum að skoða eina af kennsluflugvélum okkar og koma í kynnisflug, segir í tilkynningu frá skólanum.
Flugakademía Keilis býður upp á nám í flugtengdum greinum svo sem einkaflugnám, atvinnuflugnám til blindflugsréttinda, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn. Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi en staðsetning skólans felur í sér einstakt tækifæri til þess að skapa frábæra aðstöðu bæði til kennslu flugtengdra greina og öryggisfræða. Kennslufloti Keilis samanstendur af fullkomnustu flugvélum sem völ er á til grunnþjálfunar flugmanna á nútíma farþegaflugvélar. Flugvélarnar eru búnar afar fullkomnum mælitækjum og eru ákaflega öruggar. Keilir hefur ávallt sett sér þær kröfur að nemendur hafi aðgang að fyrsta flokks búnaði til þjálfunar ásamt áhugasömum og reyndum kennurum.
Hægt er að fylgjast með ferð flugskólans um landið, skoðað myndir og myndbönd og skráð sig í kynnisflug á: facebook.com/keilir