Kippa stoðum undan skuldsettari útgerðarfyrirtækjum

Á fundi Byggðaráðs Skagafjarðar var lögð fram skýrsla, unnin af sérfræðingum KPMG Ísland um áhrif af framkomnum tillögum um lagaumhverfi í sjávarútvegi á Sveitarfélagið Skagafjörð vegna þeirra frumvarpa um stjórn fiskveiða sem liggja á borði ríkisstjórnarinnar.  Í henni kemur m.a. fram að búist er við umhleypingum á næstu árum meðan útgerðin lagar sig að breyttum aðstæðum.

Byggðarráð samþykkti harða ályktun þar sem skorað er á alþingismenn að leggja málin til hliðar.

Ályktun Byggðaráðs:
Við undirrituð vörum Alþingi sterklega við því að samþykkja fyrirliggjandi frumvörp ríkisstjórnarinnar til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Greinargerð óháðra sérfræðinga, sem fylgir frumvörpunum og sem unnin var að beiðni sjávarútvegs- og landsbúnaðarráðuneytisins, ætti að hvetja löggjafann að staldra við og ígrunda gaumgæfilega áhrif lagasetningarinnar á rekstur og afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og á sjávarbyggðir landsins. Sérfræðingarnir búast við ”umhleypingum á næstu árum meðan útgerðin lagar sig að breyttum aðstæðum“ og segja að áformuð lagasetning muni verða ”mjög íþyngjandi fyrir rekstur sjávarútvegsfyrirtækja“. Enn fremur að hækkun veiðigjalds muni án efa ”kippa stoðum undan skuldsettari útgerðarfyrirtækjum.“ Þá benda sérfræðingarnir á að byggðaaðgerðir frumvarpsins séu ”ólíklegar til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að“, enda skorti enn þann ”langtímastöðugleika sem getur skapað grundvöll fyrir uppbyggingu atvinnulífs í sjávarbyggðum“. Undirritaðir telja að þessi varnaðarorð, sem fylgja frumvörpunum, séu meira en næg ástæða fyrir alþingismenn til að leggja málin til hliðar frekar en að stuðla að því að lögfesta þau og stuðla þannig að ”umhleypingum“ með alvarlegum afleiðingum fyrir fólk og fyrirtæki í sjávarbyggðum landsins, m.a. mögulegri lækkun launa sjómanna og fiskverkafólks, lækkunar útsvarstekna sveitarfélaga, minni fjárfestingagetu sjávarútvegsfyrirtækja á landsbyggðinni og þar með en minni atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni en nú er. Við slíkt verður ekki unað.

Stefán Vagn Stefánsson, Bjarni Jónsson, Jón Magnússon og Þorsteinn T. Broddason.

Fleiri fréttir