Kjósum öflugan leiðtoga - Guðbjart Hannesson í 1. sæti

Guðbjartur Hannesson

Framundan er prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi helgina 6. – 8. mars. Það er mikið happ fyrir okkur að hafa úr svo mörgum hæfum frambjóðendum að velja. Full ástæða er til þess að hvetja alla Samfylkingarmenn til að nýta kosningarétt sinn og stilla upp sterkum lista.

 

 

 

Að mínu mati er óumdeilanlegt að Guðbjartur Hannesson er leiðtogi jafnaðarmanna í þessum landshluta. Hann hefur verið oddviti flokksins s.l. tvö ár og staðið sig með miklum sóma. Þrátt fyrir að vera nýr á alþingi hefur hann verið kjörinn til að sinna fjölmörgum ábyrgðarstörfum og nú síðast sem forseti alþingis. Þessi skjóti frami hefur ekki komið mér né mörgum öðrum á óvart. Hér er á ferð öflugur og réttsýnn leiðtogi sem vinnur vel að hagsmunum fyrirtækja og heimila. Alþingismaður sem svo sannarlega er traustsins verður.

 

Forystumenn í stjórnmálum þurfa að hafa skýrt umboð frá umbjóðendum sínum til að geta kallað eftir valdastöðu t.d. í ríkisstjórn. Ég skora á alla atkvæðisbæramenn að setja Guðbjart í 1. sæti og tryggja honum örugga kosningu sem leiðtogi í okkar kjördæmi. Á þann hátt sendum við skýr skilaboð inn í þingflokk Samfylkingarinnar og inn á Alþingi um hver það sé sem við viljum fá og treystum til að gegna forystu í mikilvægu endurreisnarstarfi á næstu árum.

 

Kjósum öflugan leiðtoga, kjósum Guðbjart Hannesson í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar.

Fleiri fréttir