Kjúklingur í Ritz kexi og kjúklingasúpa
Guðmundur Steinsson í Víðigerði var matgæðingur Feykis í mars 2010 og bauð lesendum upp á kjúklingaveislu, Kjúkling í Ritz kexi og kjúklingasúpu.
- Kjúklingur í Ritz kexi
- Kjúklingalundir (slatti)
- Ritzkex 1 pakki
- Egg 3-4
- Salt, pipar og chili ca. 1 teskeið af hverju (eftir smekk)
Hræra saman eggin og mylja niður ritzkexið (mjög fínt), velta kjúklingalundunum upp úr eggjunum og síðan upp úr ritzkexinu. Steikja á pönnu og bera fram með sweet chilisósu og hrísgrjónum.
Kjúklingasúpa
- Kjúklingur
- Kjúklingasoð (ca. 1 ltr. sterk lögun bragðmikið)
- Laukur 1-2 stk.
- Gulrætur 3-4 stk.
- Paprika 1-2 stk.
- Herbs de Provence 1 teskeið
- Basilika 1 teskeið
- Sage 1/2 teskeið
- Paprikiuft 1 teskeið
- Tómatpure 1-2 teskeiðar (eftir smekk)
- Hvítlauksrif 1 stk
- salt og pipar eftir smekk
Ef þú ert með heilan kjúkling skaltu sjóða hann í soðinu og þegar hann er tilbúinn taka hann uppúr og tæta hann saman við soðið. Skera niður laukinn og svissa hann á pönnu, skera niður gulræturnar og paprikuna og setja allt út í soðið. Leyfa þessu að sjóða í svolítinn tíma og síðan slökkva undir. Leyfa þessu að kólna niður og síðan að hita það upp aftur og þá að smakka það til eftir þörfum.
Verði ykkur að góðu!