Klassík í Bergi þann 21. janúar
Menningarhúsið Berg á Dalvík býður uppá metnaðarfulla klassíska tónleikaröð í vetur en meiningin er að slík tónleikaröð verði árlegur viðburður í Bergi.
Á tónleikunum í vetur munu koma fram nokkrir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar.
Fyrstur steig á stokk Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, sem hélt einleikstónleika 5. nóvember 2011. Þann 21. janúar 2012 kemur Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari fram ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara og þann 17. mars 2012 mæta til leiks þeir Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari. Tónleikarnir verða allir á laugardögum og hefjast kl. 16:00.
Nálægð áheyrenda við flytjendur er mikil í tónleikasalnum í Bergi. Á tónleikunum verður þessi kostur salarins undirstrikaður því flytjendur munu gefa sér góðan tíma til að tala um verkin á milli þess sem þeir flytja tónlistina.
Forsala miða á tónleikana er í Bergi menningarhúsi á Dalvík.
Klassík í Bergi 2011-2012
- 5. nóvember,laugardagur kl. 16:00. Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari
- 21. janúar, laugardagur kl. 16:00. Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari
- 17. mars, laugardagur kl. 16:00. Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari
/Fréttatilkynning