Kona á skjön til Akraness
Á morgun, laugardaginn 10. mars kl. 13 opnar sýningin Kona á skjön, um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi. Sýningin var fyrst sett upp á Sauðárkróki sumarið 2017, síðan á Borgarbókasafni Reykjavíkur í janúar- mars 2018 og nú á Bókasafni Akraness. Sýningarhöfundar og hönnuðir eru þær Kristín Sigurrós Einarsdóttir, kennari og leiðsögumaður og Marín Guðrún Hrafnsdóttir, bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar.
Á heimasíðu Akraness segir að þær Kristín og Marín muni opna sýninguna en einnig verður boðið uppá tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Akraness. Kaffiveitingar í boði bókasafnsins.
Sýningin stendur yfir til 21. apríl og er opin á afgreiðslutíma safnsins. Í lok sýningartímans verður efnt til kaffikviss / spurningakeppni úr verkum Guðrúnar frá Lundi.
Sjá nánar HÉR