Konukvöld til styrktar Körfuknattleiksdeildar Tindastóls
Körfuknattleiksdeild Tindastóls stefnir á að halda konukvöld til styrktar deildinni á Mælifelli þann 16. mars nk. Í ár ætlar Siggi Hlö að halda uppi stuðinu og verður m.a. með bingó þar sem veglegir vinningar verða í boði, t.d. skartgripir, snyrtidót, vörur frá Bláa lóninu, út að borða, klipping og litun og margt fleira.
Samskonar konukvöld var haldið í fyrra og samkvæmt heimasíðu Tindastóls vakti það mikla lukku á meðal viðstaddra. „Nú er komið að því að endurtaka leikinn frá því í fyrra og er ætlunin að toppa það. Troðfullt hús var á Mælifelli þá þar sem m.a. kynlífsfræðingur fór á kostum í pistli sínum og veitti ráðgjöf. Tískusýning, söngur, að ógleymdu happdrætti þar sem vinningar voru ekki af verri endanum,“ segir á vef Tindastóls.
Leikmenn körfuknattleiksdeildarinnar ætla að láta sjá sig og taka þátt í skemmtuninni.
Húsið opnar kl. 20.30 og aðgangseyrir 2.500 krónur. Innifalið í aðgangseyri er bingóspjald, fordrykkur og ball. Á ballið kostar 1.500 krónur inn.