Körfuknattleiksdeild Tindastóls og VÍS undirrita styrktarsamning
Sigurbjörn Bogason fyrir hönd VÍS og Þröstur Jónsson fyrir hönd Körfuknattleiksdeildar Tindastóls undirrituðu á dögunum samning þar sem VÍS styrkir deildina með fjárframlagi næstu þrjú árin.
Í fréttatilkynningu kemur fram að VÍS hefur verið ötull stuðningsaðili við íþróttastarf til margra ára og er engin breyting þar á.
„VÍS er ljóst að erfitt er fyrir félög á landsbyggðinni að halda úti fjölbreyttri íþróttastarfsemi og kemur þetta fjármagn sér því vel við áframhaldandi uppbyggingu körfuboltaíþróttarinnar á Sauðárkróki,“ segir í fréttatilkynningu.