Köttur í óskilum

Svört læða með hvítum skellum líklega ekki nema um 6 mánaða gömul, eða nánast kettlingur ennþá er í óskilum á Sauðárkróki. Finnandinn segir að læðan sé mjög kelin og sé greinilega inni- eða heimilisköttur þannig að einhver hlýtur að sakna kattarins.

Læðan er ekki með ól og jafnvel ólíklegt að hún sé örmerkt ennþá. Hægt er að hafa samband við finnandann í síma 8254627 en hann mun fara með kisu um hádegið til bæjarins ef enginn hefur haft samband..  og þá verður væntanlega sorg einhverstaðar.

Fleiri fréttir