KR-ingar mæta ekki á Krókinn
Ekki verður af fyrirhuguðum æfingaleikjum sem áttu að fara fram um helgina við KR í körfubolta á Sauðárkróki þar sem gestirnir hafa afboðað komu sína á Krókinn. „Mikil vonbrigði þar sem búið var að gera allt klárt fyrir leikina“, segir Ólafur B. Stefánsson stjórnarmaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
Þetta óvænta útspil KR-inga setur allt úr skorðum varðandi tímasetningar annarra leikja. Höttur frá Egilsstöðum mætir á Krókinn og munu aðallið Tindastóls og Hattar spila í kvöld kl. 19.15. Verið er að vinna í nýrri dagskrá sem birt verður hér á Feyki.is um leið og fréttir berast.