Krefjast viðbótarfjármagns í Vatnsnesveg

Vatnsnesvegur. Mynd: KSE
Vatnsnesvegur. Mynd: KSE

Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnar því að í nýsamþykktri samgönguáætlun 2015-2018 sé gert ráð fyrir framkvæmdum við brúarstæði Tjarnarár á Vatnsnesi, enda hafi framkvæmdin verið baráttumál um árabil. Hún sé þó ekki nægileg til að laga ástand vegarins og kemur ekki í veg fyrir hættuástand né styttir hún ferðatíma skólabarna í skóla.

Sveitarstjórn krefst þess að viðbótarfjármagn verði sett í frekari uppbyggingu vegarins strax á árinu 2017, að því er fram kemur í fundargerð sveitarstjórnar frá 13. október. Er þar tekið undur bókun byggðarráðs um ástand vega í sveitarfélaginu, sér í lagi Vatnsnesvegar og þá stöðu sem komin er upp vegna stóraukinnar umferðar og langvarandi skorti á viðhaldi og uppbyggingu vegarins.

Í samgönguáætlun 2015-2018, sem nýlega var samþykkt á Alþingi, eru áætlaðar framkvæmdir við Tjarnárá á Vatnsnesi árið 2018. Byggðarráð Húnaþings vestra krefst þess að ráðist verði án tafar í bráðnauðsynlegar úrbætur á Vatnsnesvegi og að gert verði ráð fyrir áframhaldandi varanlegum framkvæmdum, breikkun vegar og lagningu slitlags strax á árinu 2017.

 

Fleiri fréttir