Kristín Ragnars sýnir í Deiglunni á Akureyri

Kristín Ragnars við eitt verka sinna á sýningunni. MYNDIR AÐSENDAR
Kristín Ragnars við eitt verka sinna á sýningunni. MYNDIR AÐSENDAR

Myndlistarkonan Kristín Ragnars frá Sauðárkróki sýnir nú list sína í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri. Sýningin kallast Augnablik – fallega líf og opnaði föstudaginn 20. nóvember og er aðeins opin í þrjá daga. Síðasti dagur sýningarinnar er því á morgun, sunnudaginn 22. nóvember, og er sýningin opin frá kl 14-18.

Augnablik – fallega líf er fimmta einkasýning Kristínar en hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga. Í kynningu á sýningunni segir Kristín: Í listsköpun minni dreg ég fram þá fegurð sem oft fer framhjá okkur í hversdagslegum augnablikum, sem við upplifum og festi þau á mynd. Stíll minn er abstrakt-raunsæi. Verk sýningarinnar sýna augnablik í okkar fallega lífi og mótívið eru hendur. Ég tek ljósmyndir af höndum sem ég vinn svo áfram með í ferlinu. Ég nýti abstrakt-bakgrunn til að undirstrika viðfangsefnið, sem er raunsætt. Þannig nær boðskapurinn betur í gegn og fær aukið vægi í einfaldri en raunsærri mynd sem hvílir ofan á abstrakt-grunninum.

Í verkum mínum nota ég kol, pappírssniðmát sem ég geri sjálf, klippimyndir (Morgunblaðið), ýmis bindiefni, spreymálningu, akrýlmálningu og olíumálningu í lögum.

Um myndlistarkonuna

Myndlistarkonan Kristín Ragnars er fædd og uppalin á Sauðárkróki. Kristín byrjaði á unga aldri að teikna og hefur tekið mörg námskeið í tengslum við myndlist. Hún fór í Myndlistar og handíðaskóla Íslands og lauk fornámi þaðan 1998. Þá tók hún langt hlé meðan hún var að ala upp börnin sín, en hefur tekið námskeið við og við í gegnum tíðina.

Árið 2024 fór hún í myndlistarnám í Myndlistarskóla Akureyrar og tók aðeins eitt ár þar sem skólanum var lokað haustið 2025. Það leiddi til þess að Kristín ákvað að fara í fjarnám í myndlist frá Milan Art Institute árið 2025-2026 í “Mastery Program” sem er um 2ja ára nám í myndlist.

Í verkum sínum leitast Kristín við að tjá það sem er fallegt í jafnvel smáum hversdagslegum andartökum og lyftir því upp. Hvort sem það er náttúra, fólk eða litlir hlutir sem við í hversdagsleikanum gleymum og við getum öll verið þakklát fyrir að upplifa.

Fleiri fréttir